1. Get ég farið í fleiri en eina áheyrnarprufu ef ég næ ekki að vera valin í þeirri fyrstu
Svar: Já en þú þarft þá að verða þér út um annan disk til þess að setja inn nýtt skráning númer.
2. Ég er búin að skrá mig í áheyrnarprufu en kemst ekki á tilsettum tíma
Svar: Ákveðnir dagar eru áætlaðir í áheyrnarprufur og hægt er að velja um nokkrar dagsetningar. Eingöngu er hægt að taka þátt á tilgreindum dögum.
3. Get ég skráð mig í áheyrnarprufu í öðru sveitarfélagi en ég tilheyri
Svar: Já þú getur valið á heimasíðunni þann stað þar sem þér hentar best að taka þátt.
4. Ég er 11 ára en verð 12 ára á árinu, má ég taka þátt
Svar: Já
5. Ég er 16 ára en verð 17 ára á árinu, má ég taka þátt
Svar: Já
6. Fæ ég fleiri en eitt tækifæri til að syngja fyrir framan dómara í áheyrnarprufunum
Svar: Nei, hver keppandi fær aðeins eitt tækifæri til að spreyta sig.
7. Ef ég kemst áfram í undanúrslit, þarf ég þá að velja annað lag af geisladiski Raddarinnar
Svar: Nei þegar komið er í undanúrslit keppninnar geta keppendur valið sér lag að eigin vali til að syngja. Fram að undanúrslitum verða allir að velja sér lag af geisladiski Raddarinnar.
8. Geta tveir eða fleiri sungið saman í áheyrendaprufunum
Svar: Já ef að báðir aðilar hafa skráð sig til keppni með tveimur skráningarnúmerum.
9. Eru allir keppendur teknir upp fyrir Stöð 2
Svar: Stöð 2 mun taka upp innskot og viðtöl við keppendur hér og þar á landinu sem verður notað í þættina sem verða sýndir í haust.
10. Má ég semja nýja texta við það lag sem mig langar að syngja í áheyrnarprufunum
Svar: Keppendum er frjálst að semja nýjan texta við lögin og syngja þau á því tungumáli sem þeir óska.
11. Má ég nota textablað þegar ég syng í áheyrnarprufunum?
Svar: Nei þú þarft að kunna lag og texta þegar þu kemur og syngur
12. Syng ég með undirleik í áheyrnarprufunum?
Svar: Já þú syngur hluta af því lagi sem þu velur þér af disknum
13. Hvenær þarf ég að vera búin að skrá mig?
Svar: Best er að skrá sig sem allra fyrst í keppnina,
14. Mig langar að syngja annað lag en ég setti inn í skráningarformið, má ég skipta?
Svar: Já það er í lagi
15. Syng ég eingögnu fyrir framan dómarana í áheyrnarprufunum?



