Stöð 2 kemur að Röddinni í samvinnu við Siggu og Maríu með þeim hætti að fjórir þættir verða sýndir á
Stöð 2 í ágúst og september.
Myndatökumaður mun fara með Siggu & Maríu á þá staði sem keppnin verður haldin og taka viðtöl og myndir af keppendum.
Undankeppnin verður tekin upp í Reykjavík 11. ágúst.
Þrír þættir verða frá áheyrnarprufum og undankeppninni í Reykjavík.
Fjórði þátturinn verður lokakeppnin sjálf, dagur og staðsetning er ekki ákveðin, nánar auglýst síðar.



