1. Til að skrá sig í Röddina þurfa keppendur að vera 12 ára ( f.´98) á árinu og þeir sem eru 16 ára en verða 17 ára á árinu er líka heimilt að taka þátt. ( f. ´93)
2. Keppandi þarf að kaupa diskinn ''Röddin 2010'' til að geta tekið þátt í Röddinni. Diskurinn inniheldur 25 lög án söngs, keppandi velur eitt lag af diskinum til að syngja í áheyrnaraprufunum.
3. Hver diskur hefur sitt eigið númer eða kóða sem þarf að setja inn við skráningu á heimasíðunni www.roddin.is
4. Lögin á diskinum eru flest í styttri útgáfu eða um 3 mín hvert lag. Inni á heimasíðunni má finna alla texta af lögunum og tengla til að geta hlustað á frumútgáfu laganna.
5. Hver keppandi getur notað skráninga númerið sitt einu sinni og? þarf hann að mæta með diskinn í áheyrnarprufuna.
6. Ef keppandi nær ekki að komast í úrslit og reynir aftur á öðrum stað á landinu þarf hann annað númer/disk.
7. Þar sem keppandi er ekki orðin lögráða þarf hann að fylla út eyðublað á heimasíðunni www.roddin.is varðandi þáttöku í keppninni og fá undirskrift foreldri / forráðamans, hann þarf síðan að prenta umsóknina út og afhenda í áheyrendaprufunni. Ef ekki, þá eru eyðublöð á hverjum þátttökustað sem þarf að fylla út og skrifa undir. (Hafa skal diskinn meðferðis)
8. Þegar komið er í undanúrslit og lokakeppni eru keppendur ekki bundnir við að syngja lag af geisladiski Raddarinnar.
Keppendur eru hvattir til að prenta út leyfisbréf og mæta með það undirritað, til þess að flýta fyrir þegar mætt er til áheyrnarprufu. Þeir sem ekki geta prentað bréfið út geta mætt með forráðamann með sér til að skrifa undir leyfi fyrir þátttöku á keppnisstað.



