Í tengslum við keppnina kemur út geisladiskur með undirleik af 25 vinsælustu lögum dagsins í dag í bland við eldri lög sem henta vel þessari keppni.
Undirspilin eru vel úr garði gerð og hvert lag ekki lengra en 3 mínútur að lengd. Lagavalið er fjölbreytt og fyrir breiðan hóp þátttakenda. Lögin eru öll án söngs.
Keppendum er gert að festa kaup á þessum geisladisk þar sem þeim ber að velja sér lag af diskinum til að syngja fyrir dómnefndina í
áheyrnarprufunum.
Hver diskur er númeraður með ákveðnum kóða sem jafnframt er þátttökunúmer hvers keppanda. Diskarnir eru til sölu um allt land
á sölustöðvum N1.
Ath: Í sumum tilvikum hafa lögin verið stytt og eru þar af leiðandi ekki alveg eins og söng-útgáfan er af laginu.
Ath: Kaup á diskinum jafngildir einu þátttökugjaldi í keppnina og keppendur geta því ekki sameinast um kaup á einum diski.



