headerheaderheaderheader

Fyrirkomulag

Áheyrnarprufur verða haldnar á sjö stöðum víðsvegar um landið á tímabilinu júní -  ágúst. Þessir staðir eru: Reykjavík: 19. & 20. júní Ólafsvík: 27.

Fyrirkomulag keppni

Áheyrnarprufur verða haldnar á sjö stöðum víðsvegar um landið á tímabilinu júní -  ágúst. Þessir staðir eru:

  • Reykjavík: 19. & 20. júní
  • Ólafsvík: 27. Júní
  • Vestmannaeyjar: 3. & 4. júlí
  • Ísafjörður: 10. júlí
  • Neskaupsstaður: 17. & 18. júlí
  • Selfoss: 24. & 25. júlí
  • Akureyri: 31. júlí & 1. ágúst

Allar áheyrnarprufurnar hefjast kl. 10.00 að morgni á þeim stöðum sem þær eru haldnar. Á þeim stöðum þar sem hægt verður að hafa söngvakeppnina á sama degi verður hún kl. 16.00,  annars verður söngvakeppnin haldin á sunnudeginum.

Allar nánari upplýsingar verða veittar í fréttadálkinum á forsíðunni. Keppendur taka þátt í forvali og syngja lagabút af einu lagi af geisladisknum sem fylgir keppninni. 15 bestu keppa síðan sín á milli í söngvakeppni sem haldin verður sama dag eða daginn eftir.
Þar syngja keppendur allt lagið sem þeir hafa valið sér af geisladisknum. Af þeim verða valdir tveir einstaklingar til að taka þátt í undankeppni sem fram fer í Reykjavík 11. ágúst.

Undantekning frá þessu eru Reykjavik og Akureyri, þar sem tíu komast áfram af höfuðborgarsvæðinu og fjórir frá Akureyri, og fjórir frá Selfossi. Samtals eru því 30 keppendur sem keppa sín á milli í undanúrslitum sem haldin verða í Reykjavík 11. ágúst.
Eftir undanúrslit standa svo 10 keppendur eftir sem fara áfram í lokakeppnina og keppa um titilinn Röddin 2010. Dagsetning lokakeppni óákveðin, nánar auglýst síðar

Svæði

Prufa 3
Stefna ehf Hugbúnaðarhús - Moya