headerheaderheaderheader

Röddin

Hugmyndin að Röddinni fæddist snemma árs 2009 þegar Sigga Beinteins & María Björk byrjuðu að hanna og þróa söngkeppni fyrir aldusrhópinn 12 til 16 ára.

Röddin

Hugmyndin að Röddinni fæddist snemma árs 2009 þegar Sigga Beinteins & María Björk byrjuðu að hanna og þróa söngkeppni fyrir aldusrhópinn 12 til 16 ára. Síðan þá hafa þær unnið að útfærslu og framkvæmd keppninnar og ári seinna er hún orðin að veruleika.

Áheyrnaraprufur og söngkeppnir verða á sjö stöðum í kringum landið og enda á undankeppni og lokakeppni í Reykjavík í ágúst og september.

Markmið keppninnar er að efla áhuga barna og unglinga á söng, tónlist og sviðsframkomu og veita þeim tækifæri og reynslu til að koma fram í uppbyggilegu keppnisumhverfi. Dómarar verða Sigga Beinteins og María Björk.

Dómarar og aðstandendur keppninnar munu ávalt leitast við að veita jákvæða og uppbyggilega endurgjöf til keppenda.

Veglegir vinningar eru í boði fyrir vinningshafa Raddarinnar og fær hann meðal annars glæsilegan farandbikar, flug með Flugfélagi Íslands ásamt þvi að syngja inn lag á geisladiskinn Pottþétt 54 sem kemur út hjá Senu haustið 2010.

Í tengslum við keppnina kemur út geisladiskur með undirleik 25 laga án söngs, en sá diskur er jafnframt skráningargjald í keppnina. Á þessum diski er að finna vinsæl ný lög ásamt eldri lögum sem henta vel í keppni sem þessa.

María Björk og Sigga Beinteins vonast til að sjá sem flesta í sumar.

Svæði

Prufa 3
Stefna ehf Hugbúnaðarhús - Moya