headerheaderheaderheader

Áheyrnaprufum lokið

Áheyrnaprufum lokið Áheyrnarprufunum er nú lokið fyrir Röddina 2010, en prufurnar fóru fram víðsvegar um land í allt sumar. Frábær þátttaka var í sumar og

Áheyrnaprufum lokið

Áheyrnarprufunum er nú lokið fyrir Röddina 2010, en prufurnar fóru fram víðsvegar um land í allt sumar. Frábær þátttaka var í sumar og tóku á milli 800-900 keppendur þátt allstaðar af að landinu.

Margir efnilegir söngvarar sem voru að stíga sín fyrstu skref á sviði komu þar fram og stóðu sig einstaklega vel og ljóst að Ísland þarf engu að kvíða í nánustu framtíð hvað varðar fjölda efnilegra söngvara!

Miðvikudaginn 11.ágúst fóru fram undanúrslit, en þar tóku þeir 30 keppendur þátt sem sigrað höfðu í áheyrnarprufunum. Tíu af þeim hafa nú verið valdir til að taka þátt í lokakeppni Raddarinnar 2010 sem fer fram í október og verður sýnd á Stöð 2.

Byrjað verður að sýna þættina um undankeppni og undanúrslit Raddarinnar í september/október á Stöð 2.



Svæði

Prufa 3
Stefna ehf Hugbúnaðarhús - Moya